Þú ert hér: Fyrirtæki » Fréttir » ASÍ og SA opna skirteini.is

ASÍ og SA opna skirteini.is

Nú í dag opnaði vefurinn www.skirteini.is sem er samtarfsverkefni ASÍ og SA vegna svokallaðra vinnustaðaskírteina. Það tók Veflist aðeins 2 daga að setja upp vefinn fullan af efni frá því að beiðnin um það kom til okkar og þangað til vefurinn fór í loftið.

 

Þann 15. ágúst 2010 tekur gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Samkomulagið byggir á lögum nr. 42/2010 um sama efni  sem veita heildarsamtökum vinnumarkaðarins heimild til að semja um  hvaða starfsgreinar falli undir gildissvið laganna hverju sinni. Öllum atvinnurekendum í hlutaðeigandi greinum ber að sjá til þess að starfsmenn fái vinnustaðaskírteini þegar þeir hefja störf. Á vefnum www.skirteini.is eru helstu upplýsingar um lögin um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum, samning ASÍ og SA og framkvæmd hans.

 

Síðan er sett upp á Concrete5 vefumsjónarkerfinu af starfsmönnum Veflistar. Forsvarsmenn vefsins völdu staðlað útlit en starfsmenn Veflistar útveguðu lógó og gerðu litabreytingar á útlitinu í samræmi við óskir verkkaupa. Um er að ræð uppsettan vef á fullkomið vefumsjónarkerfi þar sem verkkaupi sér um alla efnisinnsetningu og viðhald á kr. 59.900,- án vsk. og vistun vefs, léns og umsýsla með netföngum fyrir fyrir kr. 4.990,- á mánuði. Verkkaupi keypti sér þjónustu Veflistar við innsetningu og frágang efnis inn í vefinn.


Skrifað af: Gauti Marteinsson þann 15/06/2010

Til baka í fréttir