Veflist er stolt að tilkynna að vefurinn www.askrift.is hefur opnað á vefverslunarkerfi Veflistar. Vefurinn er fyrsti sinnar tegundar á Íslandi en hann sérhæfir sig í sölu áskrifta á bæði innlendum og erlendum tímaritum og dagblöðum.
Fyrirtækið á bak við vefinn heitir Tímarit & Áskrift ehf. en það hefur gert samninga við helstu útgáfufélög í Bretlandi, Bandaríkjunum, Þýskalandi, Skandinavíu og á Íslandi. Fyrirtækið kappkostar að bjóða vönduð og vinsæl tímarit á mjög góðu verði í áskrift og getur verðmismunur á einstöku blaði seldu í áskrift verið allt að 70% lægra, borið saman við verð á sama blaði seldu út úr búð. Á www.askrift.is má finna yfir 500 tímaritatitla í áskrift þannig að allir ættu að finna tímarit við sitt hæfi á viðráðanlegu verði. Veflist óskar forsvarsmönnum vefsíðunnar til hamingju með glæsilega opnun.
























