Þú ert hér: Fyrirtæki » Fréttir » Brother.is opnar

Brother.is opnar

Í upphafi nýs árs opnaði vefur RVR Control vefverslunina www.brother.is sem selur prentara og prentvörur undir vörumerkinu Brother. Einnig er verið að selja margmiðlunarbúnað, öryggisvörur og kapla ýmiss konar.

 

Síðan er sett upp á Cs-Cart vefverslunarkerfinu af starfsmönnum Veflistar. Forsvarsmenn verslunarinnar völdu staðlað útlit en starfsmenn Veflistar bættu lógói þeirra inn og gerðu litabreytingar á útlitinu í samræmi við óskir verkkaupa. Verkkaupi sá um alla efnisinnsetningu. Um er að ræð fullkomna vefverslun uppsetta og tengda við kortagátt Valitor á kr. 99.900,- án vsk.og vistun á kr. 9.900,- án vsk. á mánuði.


Skrifað af: Gauti Marteinsson þann 10/01/2010

Til baka í fréttir