
Vefir veflistar eru keyrðir á Concrete5 vefumsjónarkerfinu. Það er reynsla okkar hjá Veflist að smærri fyrirtæki vilja einfalt en samkeppnishæft vefumsjónarkerfi. Því erum við stöðugt að skoða okkur um að leit að prófuðum og vinsælum lausnum sem í boði eru. Concrete5 er kerfið sem uppfyllir þessar kröfur og gerir enn betur. Staðaleiningar eru meðal annars, Fréttakerfi, eyðublaðakerfi, myndaalbúm, skjalakerfi, veftré og leitarvél.
Hvað gerir Concrete5 svona einstakt?
Fáanlegar einingar?
Að neðan eru staðaleiningarnar í kerfinu taldar upp en hægt er að fá mun fleiri viðbætur.- Fréttakerfi
Fréttakerfið í Concrete5 er hannað með það í huga að halda utan um mikið magn fréttagreina og tilkynninga. Heldur kerfið utan um höfunda, fréttaflokka og fleira. - Skoðanakannanir
Skoðanakannanir er eitt besta markaðstól sem völ er á í dag fyrir öll fyrirtæki. Netverjar geta kosið og fengið niðurstöður um leið. Auðvelt er fyrir vefstjóra að setja inn eða breyta spurningum og svörum. Vefstjóri getur einnig séð ítarlegri niðurstöður úr öllum skoðanakönnunum á stjórnborði. - Eyðublaðakerfi
Eyðublaðakerfið gerir vefstjórum kleift að búa til eyðublöð sem síðan eru birt á vefsíðunni t.d.fyrir skráningarform eða atvinnuumsóknir og er það einstaklega auðvelt í notkun. - Myndaalbúm
Getur haldið utan um mikið magn mynda. Einstaklega auðvelt er að setja inn myndir og er hægt að setja inn allt að 5 myndir inn á sama tíma. - Skjalakerfi
Skjalakerfið gerir þér kleift að halda utan um allar tegundir af gögnum. Á auðveldan máta er hægt að hlaða inn gögnum beint á netið og birta á vefsíðunni. - Niðurhalskerfi
Gerir vefstjórum kleift að búa til skjalasafn sem auðvelt er að halda utan um og flokka í gegnum vefumsjónarkerfið. - Gestabók
Gerir netverjum kleift að skilja eftir skilaboð á síðunni þinni svo allir sjá. - Leitarvél
Auðveldar netverjum að leita í stórum gagnagrunni. - Veftré
Veftré birtir allar síður vefsins, ásamt undirsíðum og fréttagreinum á einni síðu. - Heimsóknatölfræði
Auðvelt er að tengja hverskyns tölfræði forrit sem gefur þínu fyrirtæki góða yfirsýn yfir heimsóknir sem birtar eru á síðunni. Ath. tenging fylgir ekki tilboði. - Tenglasafn
Auðvelt er að setja inn tengla í gegnum stjórnborð og birta á vefsíðunni.
Hafir þú áhuga á að kynna þér kerfið frekar, getur þú haft samband við okkur í síma 567 5705 eða sendu okkur línu á sala@veflist.is fyrir frekari upplýsingar
























