Nýlega opnaði Veflist ferðaþjónustuvefinn www.fjallasyn.is fyrir Fjallasýn Rúnars Óskarssonar ehf. bæði á ensku og íslensku. Fyrirtækið sérhæfir síg í ferðum á NA-horni landsins enda staðsett í Þingeyjarsýslum. Á vefnum má finna spennandi framboð ferða fyrir einstaklinga og hópa.
Síðan er sett upp á Concrete5 vefumsjónarkerfinu af starfsmönnum Veflistar. Forsvarsmenn vefsins útveguðu útlit en starfsmenn Veflistar settu útlitið upp á vefumsjónarkerfið í samræmi við óskir verkkaupa. Verkkaupi sá um alla efnisinnsetningu.
























