
Veflist ehf, er hugbúnaðarfyrirtæki með sérþekkingu á þróun og uppbyggingu veflausna. Veflist ehf var stofnað í janúar 2006 og hét þá Masson ehf. Í desember 2007 var nafninu breytt og heitir fyrirtækið í dag Veflist ehf og er að fullu í eigu Outcome hugbúnaðar ehf. Fyrirtækið byggir starfsemi sína á sterkum þekkingar- og rekstrargrunni og hefur markað sér mjög skýra og einfalda stefnu í þjónustu og vöruframboði. Veflist býður heildstæðar veflausnir og vefviðskiptalausnir fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki á sanngjörnu verði.
Opnunartími og almennar upplýsingar
Veflist ehf
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík
Kennitala: 480508 - 2540
Opið er frá 09:00 - 16:00 alla virka daga. Lokað er um helgar
Sími: 567 5705
Netfang: veflist@veflist.is
Gæðastefna
Gæðastefna Veflistar er einföld. Fyrirtækið kappkostar að veita framúrskarandi hýsingu með hámarks uppitíma, þ.e. sá tími sem síðan er sjáanleg á netinu. Kerfi eru þróuð og uppfærð af fagfólki með góða menntun og áralanga reynslu af upplýsingatækni.
























