Fyrr í mánuðinum opnaði vefurinn www.get.is sem er vefur Green Energy Travel - Iceland. Fyrirtækið býður fjölmargar ferðamöguleika fyrir hópa og einstaklinga og hefur sýnt mikin metnað í framboði ferða um Ísland.
Síðan er sett upp á Concrete5 vefumsjónarkerfinu af starfsmönnum Veflistar. Forsvarsmenn vefsins völdu staðlað útlit en starfsmenn Veflistar bættu lógói þeirra inn og gerðu litabreytingar á útlitinu í samræmi við óskir verkkaupa. Um er að ræð uppsettan vef á fullkomið vefumsjónarkerfi þar sem verkkaupi sér um alla efnisinnsetningu og viðhald á kr. 59.900,- án vsk. og vistun vefs, léns og umsýsla með netföngum fyrir fyrir kr. 4.990,- á mánuði. Verkkaupi keypti sér þjónustu Veflistar við innsetningu og frágang efnis inn í vefinn.
























