Þú ert hér: Fyrirtæki » Fréttir » Nær allir nota netið

Nær allir nota netið

90% íslenskra heimila eru með nettengingu en tölvur er að finna á nærri öllum íslenskum heimilum eða 92%. Þetta eru niðurstöður könnunar Hagstofu Íslands á notkun heimila og einstaklinga á tæknibúnaði og neti. Tölvu- og netnotkun er mjög almenn en 93% landsmanna á aldrinum 16-74 ára höfðu notað tölvu og netið síðustu þrjá mánuði fyrir rannsóknina.

 

Níu af hverjum tíu netnotendum senda tölvupóst og 78% lesa vefútgáfur dagblaða eða tímarita. Þrír af hverjum fjórum netnotendum nota netið til að leita upplýsinga á heimasíðum opinberra aðila og mikill meirihluti þeirra segir þessa upplýsingaleit ganga vel. Þessar upplýsingar koma fram á vef Ríkisútvarpsins. Þessar upplýsingar ættu að gefa góða mynda því hve netið getur verið sterkur og mikilvægur auglýsingamiðill.


Skrifað af: Gauti Marteinsson þann 07/10/2009

Til baka í fréttir