Samtök áhugafólks um starf í anda Reggio Emilia opnaði vef félagsins www.sare.is. Samtökin voru stofnuð fimmtudaginn 13. september, 2007 að viðstöddum yfir 100 stofnfélögum. Eins og nafn félagsins gefur til kynna er um að ræða samtök fólks sem leggur áherslu á leikskólastarf í anda Reggio Emilia, þar sem drifkraftarnir felast í lýðræði, gagnrýninni hugsun og sköpun. Á stofnfundi var kosin stjórn og lög samþykkt.
Hlutverk SARE er að stuðla að samstarfi, þróun og nýbreytni um starf í anda Reggio Emila, með því að efla samstarf og samskipti þeirra sem áhuga hafa. Markmiðum sínum hyggjast samtökin ná með því að:
- Standa fyrir málþingum, námskeiðum, ráðstefnum og samstarfsdögum um starf í anda Reggio Emilia.
- Taka þátt í og hafa frumkvæði að verkefnum þar sem hugmyndafræði Reggio Emilia er lögð til grundvallar.
- Halda úti heimasíðu þar sem félagar geta skipst á upplýsingum og hugmyndum um allt það er varðar markmið félagsins.
- Hvetja til og standa að útgáfu um starf í anda Reggio Emilia eftir því sem efni og aðstæður leyfa.
- Stuðla að samfélagslegri umræðu um starf í anda Reggio Emilia.
Félagar geta orðið allt áhugafólk um starf í anda Reggio Emilia. Styrktarfélagar geta verið stofnanir, fyrirtæki og aðrir aðilar sem hafa áhuga á að stuðla að starfi í anda Reggio Emilia.
Meðal verkefna SARE fram til dagsins í dag er ráðstefna um leikskólamál, fyrirlestrar og umræðufundir. SARE hefur komið að nokkrum verkefnum með leikskólum.
Fullrúi SARE valdi staðlaða lausn hjá Veflist sem byggir á Concrete5 vefumsjónarkerfinu. Kerfið varð fyrir valinu þar sem það er einfalt og það býður jafnframt upp á alla þá möguleika sem félagið leitaði að.
























