Þú ert hér: Fyrirtæki » Fréttir » Tölvunotkun á Íslandi mikil

Tölvunotkun á Íslandi mikil

Niðurstöður sýna að nærri níu af hverjum tíu Íslendingum á aldrinum 16?74 ára nota tölvu og internet. Flestir nota internetið því sem næst daglega.

Enn fjölgar einstaklingum sem kaupa vörur og þjónustu um internet en árið 2006 höfðu 31% einstaklinga pantað eða keypt um internet. Líkt og fyrri ár er algengast að fólk panti ferðir, gistingu eða annað ferðatengt um internet. Enn fjölgar í hópi nettengdra heimila sem nota hraðvirkar internettengingar, en þeim hefur fjölgað úr 26% árið 2002 í 85% árið 2006.


Skrifað af: Hafsteinn M. Masson þann 31/10/2007

Til baka í fréttir