Veflist opnaði nýverið vefinn www.nakkerygg.no í Noregi. Um er að ræða vef íslensks sjúkraþjálfara á norsku léni en hann er með starfsemi sína þar í landi. Starfsemi fyrirtækisins byggir á meðferð fyrir háls- og baksjúklinga. Eigandinn Dr. Eyþór Kristjánsson hefur hátt í þrjátíu ára reynslu á því sviði.
Vefurinn var settur upp í Concrete5 vefumsjónarkerfinu og settur upp á stöðluðu útliti með hliðsjón af litum, lógó og myndum úr bæklingi fyrirtækisins. Veflist var einnig ráðgefandi vegna umsóknaferilsins við lénið nakkerygg.no í Noregi.
























