Þú ert hér: Vefur

Vefur

Fullbúinn vefur á aðeins kr. 59.900 +vsk.*


Concrete5

Eitt einfaldasta vefumsjónarkerfi sem völ er á.

Vefir veflistar eru keyrðir á Concrete5 vefumsjónarkerfinu. Það er reynsla okkar hjá Veflist að smærri fyrirtæki vilja einfalt en samkeppnishæft vefumsjónarkerfi. Því erum við stöðugt að skoða okkur um að leit að prófuðum og vinsælum lausnum sem í boði eru. Concrete5 er kerfið sem uppfyllir þessar kröfur og gerir enn betur.

 

 

 

Aðeins þrjú einföld skref í átt að vef.

  1. Skref 1 - Veldu vefútlit. Sjá hér.

  2. Skref 2 - Sendu okkur lógó og óskir um liti.

  3. Skref 3 - Settu efni inn á vefinn.

 
 

Ef þú ert að leita að lausn fyrir þitt félag eða fyrirtæki til að birta efni á vefsíðu, breyta texta, bæta inn myndum og setja upp eyðublöð, þá er þetta kerfi fullkomið fyrir þig. Svo getur það gert svo miklu meira eins og listinn að neðan tilgreinir.

 

Fáanlegar einingar?

Að neðan eru staðaleiningarnar í kerfinu taldar upp en hægt er að fá mun fleiri viðbætur.
  • Fréttakerfi
    Fréttakerfið í Concrete5 er hannað með það í huga að halda utan um mikið magn fréttagreina og tilkynninga. Heldur kerfið utan um höfunda, fréttaflokka og fleira.
  • Skoðanakannanir
    Skoðanakannanir er eitt besta markaðstól sem völ er á í dag fyrir öll fyrirtæki. Netverjar geta kosið og fengið niðurstöður um leið. Auðvelt er fyrir vefstjóra að setja inn eða breyta spurningum og svörum. Vefstjóri getur einnig séð ítarlegri niðurstöður úr öllum skoðanakönnunum á stjórnborði.
  • Eyðublaðakerfi
    Eyðublaðakerfið gerir vefstjórum kleift að búa til eyðublöð sem síðan eru birt á vefsíðunni t.d.fyrir skráningarform eða atvinnuumsóknir og er það einstaklega auðvelt í notkun.
  • Skjalakerfi
    Skjalakerfið gerir þér kleift að halda utan um allar tegundir af gögnum. Á auðveldan máta er hægt að hlaða inn gögnum beint á netið og birta á vefsíðunni.
  • Niðurhalskerfi
    Gerir vefstjórum kleift að búa til skjalasafn sem auðvelt er að halda utan um og flokka í gegnum vefumsjónarkerfið.
  • Gestabók
    Gerir netverjum kleift að skilja eftir skilaboð á síðunni þinni svo allir sjá.
  • Leitarvél
    Auðveldar netverjum að leita í stórum gagnagrunni.
  • Veftré
    Veftré birtir allar síður vefsins, ásamt undirsíðum og fréttagreinum á einni síðu.
  • Heimsóknatölfræði
    Auðvelt er að tengja hverskyns tölfræði forrit sem gefur þínu fyrirtæki góða yfirsýn yfir heimsóknir sem birtar eru á síðunni. Ath. tenging fylgir ekki tilboði.

Hafir þú áhuga á að kynna þér kerfið frekar, getur þú haft samband við okkur í síma 567 5705 eða sendu okkur línu á sala@veflist.is fyrir frekari upplýsingar